- Auglýsing -
Fjórtán hafa sótt um stöðu forstjóra Landspítalans en umsóknarfresturinn rann út á miðnætti. Páll Matthíasson forstjóri sagði starfi sínu lausu í byrjun síðasta mánaðar og verður skipað í embættið frá 1. mars næstkomandi.
Sá sem ráðinn verður mun gegna stöðunni til næstu 5 ára að lágmarki en þriggja manna hæfisnefnd mun nú meta hæfni umsækjendanna fjórtán.
Þeir sem sóttu um stöðu forstjóra Landspítalans voru eftirfarandi:
- Björn Óli Ö Hauksson, verkfræðingur
- Elísa Jóhannsdóttir, hjúkrunarfræðingur
- Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, settur forstjóri
- Gunnar Ágúst Beinteinsson, framkvæmdastjóri mannauðsskrifstofu
- Hákon Hákonarson, læknir
- Jan Triebel, læknir
- Jón Magnús Kristjánsson, framkvæmdastjóri lækninga
- Kristinn V Blöndal, ráðgjafi
- Markús Ingólfur Eiríksson, forstjóri
- Ólafur Baldursson, framkvæmdastjóri lækninga
- Reynir Arngrímsson, læknir og prófessor
- Runólfur Pálsson, starfandi framkvæmdastjóri meðferðarsviðs
- Sigríður Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar
- Sigurður Erlingsson, viðskiptafræðingur