- Auglýsing -
Mynd dagsins á Mannlíf að þessu sinni, birti Guðmundur Felix á samfélagsmiðlasíðu sinni. Þar segir hann:
„Þegar þú hefur verið handalaus í tuttugu og þrjú ár og þú sérð ljósmynd af sjálfum þér, eins og þessa, þá er útilokað að færa í orð hversu djúp áhrif það hefur á þig.
Ég hef lært að lifa með fötlun minni en ég væri að segja ósatt ef ég myndi halda fram að mér liði vel þannig.“
Guðmundur bætir við að það kalli fram tár og sterkar tilfinningar að sjá sjálfan sig á mynd, líta út eins og hann sé heilbrigður á ný.