Veiðiréttarhafar eru á meðal þeirra aðila í ferðaþjónustu sem horfa upp á algjört hrun vegna COVID-19. Tjónið hleypur hjá einum þeirra á tugum milljóna.
„Þetta lítur helvíti illa út,“ segir veiðileyfasalinn og leiðsögumaðurinn þaulreyndi Árni Baldursson. Hann á fyrirtækið Lax-á, sem hefur um árabil leigt veiðisvæði og selt veiðileyfi auk þess að bjóða upp á veiðiferðir til landa eins og Rússlands og Noregs. Árni sér fram á tug milljóna tjón vegna kórónuveirunnar.
Venjan er sú að erlendur veiðimaður sem kaupir veiðileyfi greiðir helminginn við bókun en seinni helminginn þegar nær dregur. Árni segir að allt fjárstreymi til fyrirtækisins sé í frosti. Enginn greiði seinni helming greiðslunnar og allir þeir sem ekki höfðu greitt helminginn hafi afbókað. Hann segist hafa gert eina tilraun til að rukka fastakúnna síðustu daganna. „Are you out of your mind?“ var svarið sem hann fékk til baka, sem þýða mætti „Ertu viti þínu fjær?“ „Þar með lauk innheimtu minni í mars,“ segir Árni og hlær, þrátt fyrir allt.
Þetta má ekki verða til þess að markaðsstarf til margra áratuga sé fyrir bý.
Margir veiðiréttarhafar greiða helming rentunnar til landeigenda í apríl, á grundvelli samnings. Árni er einn þeirra. Hann á von á því að vorgreiðslan geti reynst mörgum fyrirtækjum á þessum markaði erfið. „Það verður mikill hristingur ef það kemur ekkert í kassann,“ útskýrir hann.
Eldri menn kaupa dýrustu ferðirnar
Árni segir að flestir þeir viðskiptavinir sem mestu eyði í veiðiferðir hjá Lax-á séu eldri menn sem eru vel stæðir. Þeir eru jafnframt í áhættuhópi vegna kórónuveirunnar, fyrir aldurs sakir. Ekki bæti úr skák að bresk stjórnvöld hafi sagt eldra fólki að ferðast ekkert næstu sex mánuðina en Bretar eru nokkuð áberandi við íslenskar veiðiár á sumrin. Einnig sé búið að ákveða að loka Rússlandi fyrir veiði allt næsta sumar og að í Skotlandi, þar sem Lax-á er með ársvæði á leigu, sé bannað að veiða.
„Það er búið að hætta við allt í sumar,“ segir hann um þessi svæði en utanlandsferðir með veiðimenn hafa verið ein stærsta tekjulind fyrirtækisins. „Þetta lítur þess vegna hörmulega út,“ segir Árni. Hann er vonlítill um að júlí, ágúst og september verði í lagi. „Það þýðir ekki alveg að útiloka það, en það yrði svakaleg heppni. Ég held að þeir komi bara ekki. Heimurinn verður ekki kominn á lappirnar svona fljótt.“
Færa menn á milli ára
Árni segir að helsta úrræði veiðileyfasala sé að færa menn á milli ára, sem greitt hafi helming veiðileyfanna. Flestir kúnnar sumarsins verði sennilega færðir til næsta sumars. Það muni hins vegar skerða söluna næsta sumar, svo tjónið sé mikið. „Við getum ekki borgað þeim til baka því við erum búnir að borga landeigendum aðra greiðsluna. Peningurinn er farinn frá okkur.“ Hann segir að tjónið hjá fyrirtækinu hlaupi á tugum milljóna króna og hann eigi von á því að fyrirtækið nýti sér úrræði stjórnvalda um hlutabætur. Fjórir starfsmenn vinna á skrifstofu fyrirtækisins. Þar hafi fólk ekkert að gera nema taka á móti afbókunum. „Það eru allir í að slökkva elda. Þetta er algjör hryllingur.“
Árni á von á því að setjast niður með landeigendum og reyna að semja um málið. Það séu allir á sama báti. Hann segir að finna verði út úr því hvort ákvæði samninga um óviðráðanlegar ytri ástæður gildi nú. „Menn verða að standa í lappirnar og greiða úr þessu. Þetta má ekki verða til þess að markaðsstarf til margra áratuga sé fyrir bý.“
„Það er bara allt farið“
Kristján Páll Rafnsson er eigandi Fish partner, sem er einn stærsti ferðaskipuleggjandinn á Íslandi þegar kemur að veiðiferðum. Fish partner gerir að stórum hluta út á urriðasvæðin á Þingvöllum á vorin. Þar eru bestu mánuðirnir apríl, maí og inn í júní. „Það er bara allt farið,“ segir hann um bókanir erlendra veiðimanna yfir það tímabil.
Kristján segir að flestir þeir sem eru komnir yfir sextugt hafi afbókað ferðir allt fram í ágúst. Það séu oft veiðimenn sem kaupa fulla þjónustu. Yngri veiðimennirnir gætu komið með skömmum fyrirvara.
Aðspurður segist Kristján eiga í góðum samskiptum við landeigendur og að allir skilji hvað við er að eiga. „Ef allt fer á versta veg þá verða allir að taka á þessu saman. Það eru allir á sömu blaðsíðu.“
Kristján á von á því að reyna að herja betur á innalandsmarkað í vor og sumar, en Fish partner hefur síðustu daga verið að auglýsa veiðileyfi á samfélagsmiðlum með miklum afslætti. Hann segir raunar að aðsóknin hafi verið slík að vefur fyrirtækisins hafi hrunið. „Við erum víkingar og munum standa okkur,“ segir hann spurður hvernig hann meti framtíð fyrirtækisins.
Málið í hnotskurn
Stangveiði velti árið 2013 um 20 milljörðum á Íslandi, samkvæmt upplýsingum frá Veiðimálastofnun. Frá árinu 2013 til 2018 lét nærri að ferðamannafjöldi á Íslandi hafi þrefaldast svo óhætt er að gera ráð fyrir umtalsvert meiri veltu. Vegna kórónuveirunnar og þeirra hamla sem settar hafa verið á ferðalög fólks sjá veiðiréttarhafar fram á erfitt sumar. Þeir sem áttu bókuð veiðileyfi í sumar hafa flestir afboðað komu sína eða verið færðir til næsta árs. Veiðiréttarhafar eru bundnir af samningum við veiðifélög landeigenda og ber að greiða rentu vegna veiðiréttarins. Ef sumarið fer á versta veg er ólíklegt að veiðiréttarhafar geti staðið við sínar skuldbindingar.