- Auglýsing -
Orðrómur
Þórunn Egilsdóttir, alþingismaður Framsóknarflokksins, hefur háð harða baráttu við krabbamein undanfarið ár og verið í veikindaleyfi. Nú hefur rofað til því hún er laus við vágestinn. Þórunn var í viðtali við morgunútvarp Rásar 1 þar sem hún lýsti reynslu sinni. Hún sló á létta strengi og sagði frá upplifun sinni af því að vera á sterum. Hún hafði þá reglu að tjá sig sem minnst á netinu þegar þannig stóð á en hélt sig við aðrar athafnir. Þórunn snéri aftur á þing í þessum mánuði, laus við meinið og sterana.