Heilbrigðisstarfsfólk landsins hefur staðið í ströngu undanfarnar vikur í kjölfar útbreiðslu COVID-19 kórónuveirufaraldursins hér á landi.
Í kvöld klukkan 19 voru íslendingar hvattir til að taka sér önnur lönd til fyrirmyndar, stíga út og klappa fyrir heilbrigðisstarfsfólki og þakka þeim þannig fyrir óeigingjarna vinnu þeirra.
Þar sem samkomubann er í gildi og töluverður fjöldi fólks sætir sóttkví var fólk til að klappa fyrir utan heimili, vinnustað, úti á svölum, í gluggum, í bílnum eða einfaldlega þar sem það var statt. Margir tóku klappið og birtu jafnvel á samfélagsmiðlum með myllumerkjunum:
#þakklætisklapp #thakklaetisklapp
Pétur Örn Guðmundsson tónlistarmaður var einn af þeim sem tóku klappið.