Edda Andrésdóttir, hefur fært Íslendingum fréttir heim í stofu síðustu fimmtíu árin, en hún hefur verið einn dáðasti fréttaþulur landsins.
Margir hafa sent Eddu kveðjur og þar á meðal er fyrrum starfsmaður Eddu, Logi Bergmann. Í færslu sinni á Facebook segir hann:
„Mér finnst þetta merkilegur dagur. Ég hélt hreinlega að Edda myndi aldrei hætta að lesa fréttir! En hún ætlar semsagt að hætta í kvöld. Við náðum tólf skemmtilegum árum saman á Stöð 2. Þar gekk á ýmsu en alltaf var Edda eins og kletturinn í hafinu,“ skrifar Logi á Facebook.
Logi Bergmann vann með Eddu Andrésdóttur sem fréttaþulur á Stöð 2 í mörg ár og sendir henni kveðju í tilefni þess að Edda las sinn siðasta fréttatíma í gær eftir um þrjátíu og tvö ár á Vísi og um hálfa öld í blaða- og fréttamennsku.
„Hún er ekki bara frábær lesari heldur hefur hún alltaf haft gaman að því að gera það sem hún gerir og veit upp á hár hvernig á að gera það. Ég sakna Eddu sem vinnufélaga og ég á líka eftir að sakna hennar af skjánum. Myndirnar eru frá tíma okkar saman á stöðinni (það er mögulega búið að eiga við eina þeirra) og ég vona að við eigum eftir að fá fleiri myndir af Eddu á skjánum. Þar á hún heima,“ skrifar Logi.
Kveðjur Ríkisútvarpsins fóru ekki vel í Sigmar, athafnarmann
Edda sagði í viðtali á RÚV í gær vera þakklát fyrir að fá að taka ákvörðunina sjálf sem hefur verið að gerjast í smá tíma. Hún útilokar þó ekki að birtast á ný á skjánum með þætti á Stöð 2. En fyrst ætlar hún að byrja að taka til í bílskúrnum.
Sigmar Vilhjálmsson, er hugsi eftir að hafa hlustað á kveðju RÚV og lýsti sinni skoðun á Twitter í gær.
Ríkisútvarpið sem starfar í almannaþágu sagði Stöð 2 „helsta samkeppnisaðila Fréttastofu RÚV“ og bendir Simmi á að RÚV sé eitthvað að misskilja hlutverk sitt.
„Í fréttum í kvöld: “..helsti samkeppnisaðili Fréttastofu RÚV..” var sagt um @stod2 í tilefni þess að Edda Andresar er að hætta. Ef @RUVfrettir lítur á aðrar fréttastofur sem samkeppnisaðila þá er RÚV að misskilja hlutverk sitt í samfélaginu.“
Í fréttum í kvöld: “..helsti samkeppnisaðili Fréttastofu RÚV..” var sagt um @stod2 i tilefni þess að Edda Andresar er að hætta. Ef @RUVfrettir lítur á aðrar fréttastofur sem samkeppnisaðila þá er RÚV að misskilja hlutverk sitt í samfélaginu. pic.twitter.com/zvcbmF4vkC
— Simmi Vil (@simmivil) August 11, 2022