Lögreglunni barst tilkynning um mann í annarlegu ástandi í gærkvöld. Maðurinn var fluttur á Bráðadeild með sjúkrabíl. Seinna um nóttina berst lögreglunni önnur tilkynning vegna sama manns. Gat hann ekki gefið upplýsingar um dvalarstað og gisti því í fangaklefa lögreglu.
Tilkynning um stolinn farsíma í Kringlunni barst lögreglu í gær en hafði eigandi farsímans náð að staðsetja hann á svæði í hverfi 105. Lögreglan hafði þar afskipti af tveimur mönnum og fann símann á öðrum þeirra. Þjófurinn sagðist eiga símann en í ljós kom að skilríki tilkynnanda voru í símahulstrinu. Eigandi símans fékk hann afhentan en handtók lögregla símaþjófinn.
Umferðarslys varð á Seltjarnarnesi seint í gærkvöldi. Missti ökumaður stjórn á bílnum vegna hálku og rann á ljósastaur. Bílsjóri og tveir farþegar voru fluttir á Bráðadeild til aðhlynningar.
Kona slasaðist við tamningar í hesthúsahverfi í gærkvöld. Hafði konan verið að temja hest þegar hún datt af baki og var hún flutt á bráðadeild til aðhlynningar.
Þá barst lögreglunni tilkynning um bílveltu í Garðabæ í gærkvöld. Hafði ökumaður bílsins náð að koma sér út úr bílnum en var farþegi enn fastur inni. Sjúkra- og tækjabifreið frá slökkviliði kom á vettvang og losaði manninn úr bílnum. Ökumaðurinn og farþeginn voru fluttir á Bráðadeild til aðhlynningar en ekki er vitað um meiðsl þeirra að svo stöddu.
Bílstjóri er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna.