- Auglýsing -
Á morgun verður sýndur fyrsti þáttur Samherjaþátta sem taka munu á ásökunum um mútur við veiðar í Afríku. Heimildir Mannlífs herma að eitt af meginmarkmiðum þáttanna sé að afhjúpa Helga Selja fréttamann og var Þorbirni Þórðarsyni, fyrrum fréttamanni Stöðvar 2, falið það verkefni. Fréttamaðurinn fyrrverandi er í hópi þeirra aðila sem veita Samherja aðstoð í kjölfar uppljóstrana um meintar mútugreiðslur í Namibíu.
Samherji hefur nú birt stiklu með upptökum af Helga. Áður hafa verið gerðir sjónvarpsþættir um fyrirtækið þar sem fjallað var um húsleit Seðlabanka Íslands hjá því og voru þeir þættir sýndir á sjónvarpsstöðinni Hringbraut.
Í Kveiksþættinum frá því í fyrra, sem var í umsjón Helga, komu fram ásakanir um mútur og spillingu í Suður-Afríkuríkinu Namibíu en Samherji fól norskri lögmannsstofu að rannsaka málið. Þeirri rannsókn er nú lokið en skýrslan ekki verið birt.
Sjá stiklu úr fyrsta Samherjaþætti hér: Samherji, fyrsti þáttur.
Aðspurður segist Helgi ekki hafa hugmynd um hverju sé von á í fyrirhuguðum þáttum. Hann segist óttast fullt af hlutum en ekki sýningu þeirra. „Ég veit ekki hvað þessum mönnum gengur til en ég get ekki sagt að þetta komi mér neitt á óvart,“ segir Helgi.