Kannanir hafa sýnt fram á stöðugan skort á hjúkrunarfræðingum á Íslandi. Aðeins 69% þeirra eru félagsmenn í Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga og um það bil þúsund hjúkrunarfræðingar starfa við annað en hjúkrun.
Mikill meirihluti hjúkrunarfræðinga (98%) eru konur og starfa um 94% þeirra á opinberum vinnumarkaði. Um 13% hjúkrunarfræðinga geta hafið töku lífeyris á næstu árum.
Niðurstaða könnunar á mönnun í hjúkrun á heilbrigðisstofnunum á Íslandi sýnir að 225 stöðugildi hjúkrunarfræðinga, eða 290 hjúkrunarfræðingar, vantar nú til starfa til að manna fjármögnuð stöðugildi hjúkrunarfræðinga á heilbrigðisstofnunum.
Meðalstarfshlutfall hjúkrunarfræðinga á heilbrigðisstofnunum er 71%. Samkvæmt mati framkvæmdastjóra hjúkrunar og hjúkrunarforstjóra vantar allt að 405 stöðugildi, eða 523 hjúkrunarfræðinga til starfa.
Ár hvert hefja að meðaltali 146 nemendur nám í hjúkrunarfræði og útskrifast að meðaltali 120 þeirra fjórum árum síðar. Brottfall nýútskrifaðra hjúkrunarfræðinga úr starfi var að meðaltali 15% á árunum 2012-2016. Að meðaltali hefja því 102 hjúkrunarfræðingar í 72 stöðugildum störf eftir útskrift ár hvert sé tekið mið af meðalstarfshlutfalli.
Spá um mönnun í hjúkrun á árunum 2017-2021 sýnir að áfram mun vanta um 420 hjúkrunarfræðinga til starfa á næstu árum enda haldi nýliðun í hjúkrun rétt í við þann fjölda sem hefur töku lífeyris á næstu árum. Hér er ekki tekið tillit til þátta á borð við fjölgun á hjúkrunarrýmum eða annarra breytinga sem gætu aukið þörf fyrir fjölgun hjúkrunarfræðinga enn frekar.