Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir er eins og þjóðin veit liðtækur tónlistarmaður og hefur spilað í hljómsveitum árum saman. Bítlarnir eru í uppáhaldi hjá honum og það hefur verið margra ára hefð í hans fjölskyldu að safnast saman á bítlatónleikum einu sinni á ári. Tónleikarnir í ár hafi átt að vera núna um helgina en hann sér ekki fram á að af því geti orðið á næstunni vegna samkomubannsins sem hann stóð sjálfur fyrir.
Þórólfur upplýsir þetta sjálfur í viðtali við Matthías Má Magnússon í þættinum Föstudagsgestinum á Rás 2 á morgun, 1. maí.
Þórólfur segir að tónleikahaldið hafi byrjað með því að á lokakvöldi Þjóðhátíðar hafi svokölluð Bítlasyrpa verið tekin í tjaldi fjölskyldunnar. „Þá voru sungin og spiluð um það bil 70 til 80 Bítlalög alveg í beit, tekin ein pissupása einhvern tímann í miðjunni,“ útskýrir hann.
Eftir að stór hluti fjölskyldunnar hafi flutt upp á land hafi hefðinni verið haldið áfram hjá frænda Þórólfs í Hafnarfirði. „Hún átti einmitt að vera núna um helgina en við þurftum að aflýsa henni út af svolitlu,“ segir Þórólfur í þættinum.
Hann segist þó ætla að sjá til þess að hægt verði að halda Bítlasyrpuna á árinu þó samkomubannið komi í veg fyrir að hægt sé að halda tónleikana núna. Að hans sögn mæta að jafnaði 50-60 manns í garðinn hjá frænda hans til að hlýða á syrpuna.
Þátturinn fer í loftið klukkan 16.05 á morgun og þar ræðir Þórólfur hvaða áhrif tónlist hefur haft á líf hans og velur sín uppáhaldslög.