Þórólfur Guðnason sóttvarnarlæknir kveðst ekki vera spenntur fyrir tilhugsuninni um beint flugi frá Bandaríkjunum til landsins. Segir hann menn almennt vera órólega vegna málsins.
Þetta kom fram í máli Þórólfs á upplýsingafundi almannavarna í dag.
Þar sagði hann jafnframt að jákvætt væri hversu fá COVID-19 smit hefðu greinst frá því að skimun hófst á landamærunum, en eins og kunnugt er hafa tvö virk smit greinst við slíka skimun, þ.e. fyrir utan gömul óvirk smit.
Þá stakk Þórólfur upp á því að slíkri skimun verði haldið áfram út júlí mánuð, að minnsta kosti.