Þorsteini Má Baldvinssyni, fyrrverandi forstjóra Samherja, blöskrar umræðan í kjölfar umfjöllunar RÚV og Stundarinnar um viðskipti Samherja í Namibíu.
„Samherji er ekkert sálarlaust fyrirtæki,“ sagði Þorsteinn Már í samtali við fréttamann Vísis í dag. „Þessar árásir hér á Íslandi á starfsfólk og fjölskyldur þeirra finnst mér fulllangt gengið,” sagði Þorsteinn aðspurður um af hverju hann stígur til hliðar sem forstjóri Samherja.
Þorsteini blöskrar umræðan að hans sögn og tekur sem dæmi að þingmenn séu að krefjast þess að eignir Samherja verði kyrrsettar á meðan á rannsókn málsins stendur. Þá skorar hann á fólk að gæta orða sinna.
Sjá einnig: Vill að eignir Samherja verði frystar og að Kristján Þór stígi til hliðar
Þegar hann var spurður út í frásögn Jóhannesar Stefánssonar, fyrrverandi starfsmanns Samherja, í þætti Kveiks og umfjöllun Stundarinnar sagði Þorsteinn: „Heimildarmaðurinn, það er að segja Jóhannes Stefánsson, það er kannski ekki allt rétt og satt sem hann segir.“
Viðtalið við Þorstein má sjá í heild sinni á vef Vísis.