Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, stígur til hliðar á meðan á rannsókn viðskipta Samherja í Namibíu stendur yfir.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samherja. „Forstjóri og stjórn Samherja hafa komist að samkomulagi um að forstjóri félagsins, Þorsteinn Már Baldvinsson, stígi tímabundið til hliðar þar til helstu niðurstöður yfirstandandi innri rannsóknar á ætluðum brotum dótturfélags í Namibíu liggja fyrir,“ segir meðal annars í tilkynningunni.
Þá kemur fram að Björgólfur Jóhannsson, fyrrum forstjóri Icelandair Group, taki tímabundið við stöðu forstjóra Samherja.
„Ég er dapur yfir þessum kringumstæðum en ég mun gera mitt besta að gæta hagsmuna Samherja og starfsfólksins,” er þá haft eftir Björgólfi í tilkynningunni.
Tilkynninguna má lesa í heild sinni á vef Samherja.
Sjá einnig: „Þetta er bara glæpastarfsemi“