Neytendavaktin er á persónulegum nótum í dag og segir frá eigin upplifun af viðskiptum sínum við Air Iceland Connect. Í síðustu viku ætlaði ég að panta mér far frá Reykjavík til Egilsstaða og nota til þess 2 flugleggi sem ég átti eftir af flugkortinu mínu. Maðurinn minn á 5 leggi. Þetta fór ekki betur en svo að þegar ég fór inn á fluginneignalistann blöstu við mér þessi skilaboð:
„Þú átt fluginneign sem er útrunninn.“
Mín inneign rann sem sagt út 09.08.20 og inneign mannsins míns rann út 27.09.20. Við höfum nokkrum sinnum keypt fluginneign hjá flugfélaginu en aldrei áttað okkur á því að hún rynni út á svo skömmum tíma. Eftir að COVID hóf innreið sína í landið hefur ferðum okkar milli landshluta fækkað vegna tilmæla sóttvarnayfirvalda um að halda kyrru fyrir. Fyrir utan það er takmarkað sætaframboð á fluginneignum þannig að til að nýta flugkort þá þarf að plana ferðir fram í tímann, sem sjaldan hentar í nútímasamfélagi. Hægt er að nýta inneignina upp í dýrari flugmiða – en þá er afslátturinn fyrir bí. Ekki hjálpar til að Air Iceland Connect er eina flugfélagið sem flýgur Reykjavík-Egilsstaði og því engin samkeppni.
Fluginneign (6 flugleggir) kostaði árið 2018 – 77.400 kr. og kostar nú 80.400 kr.
Ég tók upp tólið og hringdi í flugfélagið:
„Það er ekkert mál að framlengja gidistímann, sendu bara tölvupóst á xxx og þau græja þetta í hvelli,“ svaraði indæll ungur maður. Ég náði þó ekki netfanginu og leitaði eftir því að heimasíðunni – án árangurs. Ég hringdi aftur og fékk það uppgefið og sendi póst. 7 tímum síðar hafði ég ekki fengið nein viðbrögð, prófaði þá aftur að hringja. Kom í ljós að mér hafði verið gefið upp vitlaust netfang. Tæpum sólahring síðar fékk ég svarið:
„Sæl Berglind,
Flugfrelsin ykkar beggja hafa verið framlengd um 6 mánuði og gilda nú fram í mars 2021.“
Þetta gat ég ekki sætt mig við svo ég sendi annan póst:
„Sæl,
Ég framlengdi þetta um Ár“
Engin svör við spurningu minni um hvort þetta væru eðlilegir viðskiptahættir.