Á vefsíðunni CharityShirts.is gefa fótboltamenn eigin treyjur til styrktar góðu málefni. Ein treyja er í boði í einu, viðkomandi leikmaður velur sér góðgerðarfélag og rennur allur ágóði til þess félags.
Það er enginn annar en Aron Einar Gunnarsson fyrirliði íslenska landsliðsins í fótbolta sem gaf treyju sína í þetta sinn. Þeir sem vilja eignast treyjuna kaupa lottómiða á vefsíðu CharityShirts.is, einn miði kostar 1.000 kr. og fær viðkomandi tölvupóst með sínu lukkunúmeri/um.
Aron Einar valdi að ágóði sölunnar myndi skiptast jafnt á milli Minningarsjóðs Baldvins Rúnarssonar og Hetjanna, félags langveikra barna á Norðurlandi.
Heppinn vinningshafi verður síðan dreginn út mánudaginn 23. september kl. 19 „live“ á Facebook.
Það eru vinirnir Sturlaugur Haraldsson og Ivan Elí Du Teitsson sem standa að vefsíðunni CharityShirts.is. Treyjuuppboðin hafa til þessa látið 1.921.ooo kr. renna til góðgerðarmála.
Fylgjast má með CharityShirts bæði á heimasíðu og Facebook-síðu þeirra.