Það kemur ekki mörgum á óvart að Davíð Oddsson, ritstjóri Moggans, tekur sér stöðu gegn fjölmiðlafólkinu sem löggan á Akureyri er að eltast við vegna síma Páls Steingrímssonar, skipstjóra og skæruliða Samherja. Í leiðara Moggans í dag fjargviðrast Davíð yfir því að fjölmiðlafólkið skuli ekki taka því þegjandi að vera sett í stöðu grunaðra vegna símans sem var tilefni stórkostlegra uppljóstrana um spillingu Samherjamanna sem gerðu út út rógbera til að sitja fyrir og sverta æru Helga Seljan fréttamanns og annarra þeirra sem ekki hugnuðust Þorsteini Má Baldvinssyni forstjóra og öðrum í forystu Samherja. Davíð Oddsson var um langa hríð á framfæri Samherjamanna og Guðbjargar Matthíasdóttur, auðkonu í Vestmannaeyjum sem enn hefur hann á fóðrum. Þessi staða setur mark sitt á þann ógeðfellda málflutning sem einkennt hefur Moggann. Þurfalingurinn þakkar sægreifanum og heiðrar þann sem sem réttir honum bónbjargirnar og heggur um leið til allra fjölmiðlamanna og þá ekki síst sinna eigin …