Fjölmiðlamaðurinn Illugi Jökulsson lætur fyrir sér finna á Facebook með þessum orðum:
„Því miður er Vanda Sigurgeirsdóttir ekki heiðarleg,“ ritar Illugi og vísar til þessarar greinar á Stundinni.
Bætir við:
„Eitt er nú að þiggja milljónatugi frá mannréttindaníðingum eins og Sádum. Annað er að reyna að ljúga sig út úr vandræðum. Vanda heldur því fram fullum fetum að KSÍ hafi fengið blessun utanríkisráðuneytisins fyrir þessum tiltekna leik. Eins og fram kemur hér spurði KSÍ utanríkisráðuneytið alls ekki um landsleik í fótbolta, heldur um önnur verkefni. Hvenær ætla íslenskir valdamenn að skilja að „it’s not the crime, it’s the cover-up“?“