Orðrómur
Spennan vegna alþingiskosninganna komandi fer vaxandi. Ótal spurningamerki eru uppi í Sjálfstæðisflokknum. Víst þykir að armur Bjarna Benediktssonar með kanónurnar Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur og Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur í fremstu víglínu muni reyna að afgreiða þá Guðlaug Þór Þórðarson og Brynjar Níelsson niður listana í Reykjavík. Guðlaugur Þór hefur lengi verið þyrnir í auga Bjarna en formaðurinn hefur ekki ráðið við hann, enn sem komið er. Nú mun reyna á styrk baklands Guðlaugs Þórs sem hefur ræktað kjördæmi sitt vel …