- Auglýsing -
Nokkrar tilkynningar bárust lögrerglunni á höfuðborgarsvæðinu í gær og í nótt vegna þjófnaðar og mikillar ölvunar.
Í miðborginni var tilkynnt um þjófnað úr verslun og er málið í rannsókn að svo stöddu. Mikil ölvun var í bænum og nokkuð um líkamsárásir og stympingar.
Í Hafnarfirði bárust lögreglunni tilkynningar um grunnsamlegar mannaferðir. Á ferðinni voru ungir strákar á röltinu með hafnarboltakylfu. Lögreglan hefur rannsakað málið og átti það sér eðlilegar útskýringar. Málið er talið upplýst.