Nokkuð rólegt var hjá lögreglu á dagvaktinni.
Lögreglustöð 1
Í morgunsárið var tilkynnt um sérstaklega hættulega líkamsáras í miðbænum. Tveir handteknir og vistaðir í fangaklefa í þágu rannsóknar málsins.
Ökumaður stöðvaður vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna. Laus að blóðsýnatöku lokinni.
Þjófnaður á verðmætum af hóteli. Ekki vitað af svo stöddu hvað var tekið.
Lögreglustöð 2
Tilkynnt um mann sem ætlaði að stinga gesti á ölhúsi. Þegar lögregla handtók manninn reyndist hann ekki vera með eggvopn á sér. Laus úr haldi lögreglu eftir skýrslutöku vegna meintra hótana.
Lögreglustöð 4
Aðili handtekinn vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis. Þegar betur var að gáð þá reyndist ökumaðurinn einnig hafa neitt fíkniefna. Laus að blóðsýnatöku lokinni.
Tilkynnt um barn sem sæti í fangi aðila í framsæti bifreiðar. Lögreglan fór á stúfana en fann umrædda bifreið ekki.