Lögreglustöð 1 Austurbær Vesturbær Miðborg Seltjarnarnes
Ökumaður stöðvaður í akstri í hverfi 108, reyndist vera án gildra ökuréttinda. Málið afgreitt með vettvangsformi.
Tilkynnt um sofandi mann í verslun i hverfi 108. Tilkynnt um umferðaróhapp, bifreið og rafhlaupahjól, engin slys á fólki og málið afgreitt með tjónarformi.
Tilkynnt um öskrandi mann í hverfi 101, ekkert að sjá né heyra þegar lögreglu bar að. Tilkynnt um skuggalega aðila með innkaupakerru í hverfi 104. Enga aðila að sjá þegar lögreglu bar að.
Tilkynnt um aðila í annarlegu ástandi í hverfi 101, aðilinn búinn að valda eignaspjöllum á bifreiðum í nærumhverfi. Aðilinn vistaður í þágu rannsókn málsins.
Tilkynnt um þjófnað í verslun í hverfi 103, hefðbundið ferli lögreglu.
Lögreglustöð 3 Kópavogur Breiðholt
Tilkynnt um þjófnað úr verslun í Kópavogi. Óskað eftir aðstoð lögreglu vegna aðila sem hafði ekki greitt fyrir leigubifreið í Kópavogi.
Stöð 2 – Hafnarfjörður Garðabær
Tilkynnt um yfirstaðið innbrot í hverfi 221. Við eftirgrennslan hafði gluggi fokið upp vegna veðurs.
Tilkynnt um þjófnað úr verslun í Garðabæ, gerandi á vettvangi og málið í hefðbundið ferli hjá lögreglu.
Stöð 4 – Grafarvogur Árbær Mosfellsbær
Óskað eftir aðstoð lögreglu vegna umferðaslyss á Vesturlandsvegi. Báðar bifreiðar óökuhæfar og minniháttar slys á fólki.