Dagbók lögreglu er stútfull að þessu sinni; svo mikið var að gera í nótt að fjölmiðlapóstur næturinnar var sendur út af varðstjóra dagvaktar; já, sökum anna hjá næturvaktinni sem einfaldlega komst ekki í verkefnið.
En hjá lögreglunni á Höfuðborgarsvæðinu gista nú 11 manns fangageymslur fyrir hin ýmsu brot. Í ofan á lag við þau mál sem hér eru nefnd að neðan þá var mikið að gera hjá lögreglu að lækka í samkvæmum í heimahúsum auk þess sem töluverð ölvun var í miðborginni og þurftu nokkrir aðstoð lögreglu við að komast ýmist á fætur eða til síns heima.
Lögreglustöð 1
Tveir handteknir í miðborginni. Reyndust þeir báðir vera með piparúða á sér auk þess sem annar er grunaður um vörslu á fíkniefnum. Þeir gista nú fangageymslur lögreglu.
Ökumaður bifreiðar olli umferðarslysi. Þá kom í ljós að hann var verulega ölvaður og gistir fangageymslur í þágu rannsóknar málsins. Mikið tjón á bifreiðum.
Ökumaður bifreiðar stöðvaður vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna. Laus að blóðsýnatöku lokinni.
Ökumaður bifreiðar stöðvaður vegna gruns um ölvunarakstur. Laus að blóðsýnatöku lokinni.
Tilkynning barst lögreglu um þrjá aðila í slagsmálum í miðborginni. Þegar lögregla ætlaði að fá hjá þeim persónu upplýsingar var djúpt á skilríkjum. Mennirnir vistaðir í fangaklefa en þeir eru grunaðir um brot á útlendingalögunum.
Tilkynnt um slasaðan aðila eftir rafhlaupahjólaslys. Þá reyndist hann einnig vera ölvaður og lék grunur á að hann hefði ekið rafhlaupahjólinu undir áhrifum áfengis. Laus að blóðsýnatöku lokinni.
Ölvaður ökumaður handtekinn. Laus að blóðsýnatöku lokinni.
Óskað var eftir aðstoð lögreglu vegna slagsmála sem hefðu brutust út inni í bifreið. Þar hefðu tveir farið að deila og náði hinn yfirhöndinni með þeim afleiðingum að annar þurfti að leita á slysadeild á eftir. Grunur lék á að um stórfelda líkamsáras væri að ræða og var því annar þeirra vistaður í fangaklefa í þágu rannsóknar málsins.
Lögreglustöð 2
Tilkynnt um fjögurra bíla árekstur á Vífilsstaðarvegi. Ekki um slys á fólki að ræða.
Tilkynnt um notkun flugelda. Eins og alþjóð veit er það ólöglegt á þessum árstíma. Rætt við hluteigandi og lofuðu þeir að láta af sprengjuæðinu.
Lögreglustöð 3
Tilkynnt um þjófnað úr bifreið. Ekki var að sjá að búið hefði verið að brjótast inn í bifreiðina en eigandi hennar saknaði samt hinna ýmsu muna.
Tilkynnt um menn að ráðast að öðrum með hafnaboltakylfum. Lögreglan fór á vettvang og aðstoðaði brotaþola. Gerendur voru hins vegar á bak og burt og er þeirra nú leitað. Þeir reyndust allir hylja andlit sín með grímum.
Tilkynnt um slagsmál að bar í Kópavogi. Tveir menn reyndust þar hafa lent í áflogum við hvorn annan. Ekki talin þörf á að vista mennina fyrir líkamsárás en þurfti annar þeirra að leita aðstoðar á slysadeild vegna málsins.
Tilkynnt um eld í bifreið. Þegar lögreglu bar að reyndist ein bifreið alelda og að auki hafði eldurinn náð að teygja sig yfir í fjórar aðrar bifreiðar. Mikið eignatjón. Málið er í rannsókn.