Nú þegar verkföll olíuflutningsmanna stendur yfir er vert að kynna sér hvernig spara má eldsneytisnoktunina. Mannlíf tók saman tíu atriði sem vert er að hafa í huga við aksturinn.
- Loftsþrýstingur dekkjanna
Með því að vera með réttan loftþrýsting í dekkjunum rúllar bílinn betur og mótstaða hans minni. Bíll sem er með 10 psi of lágan loftþrýsting getur eytt 10% meira eldsneyti. Það er því vert að vitna í Stellu í orlofi og segja: „Passaðu þrýstinginn maður“
2. Auk þyngd í bílnum
Öll vitum við hversu þreytandi er að eiga við auka kíló – og bílinn þinn er sammála þér. þumalputtareglan er að við hver 50 kíló þá eykst eldsneytisnotkunin um 2%
3. Lokaðir gluggar
Ekki það að hitinn sé að myrða landann þessa dagana en þá er vert að huga að því að vindmótstaðann sem skapast við opinn glugga er töluverð. Þess vegna er ráðlagt að stilla fremur miðstöðina til að bæta loftgæðin en að opna gluggann.
4. Hinn gullni meðalvegur
Rétt eins og í öllu er öfginn best geymdur annars staðar. Akstur á 100 km/klst eyðir 15 prósent meiru eldsneyti en á 90 km/klst og eykur þú hraðann upp í 110 km/klst mun eyðslan aukast um 25 prósent. Að sama skapi reynir meira á vélina við of hægan akstur. Hið gullna miðvið er 50 – 90 km/klst (en auðvitað skal ávallt virða hámarks harða).
5. Hlustaðu á bílinn þinn
Forðastu að gefa bílnum of hratt inn. Æðibunugangurinn er eldsneytisfrekur og dýrkeyptur.
6. Bremsaðu hægt
Forðastu að bremsa harkalega, þar sem það kostar auka orku að ná aftur upp fyrri hraða. Farðu varlega og flýttu þér hægt.
7. Vertu í kontrol
Ef um langakstur er að ræða er gott að halda jöfnum hraða í efsta gír. Nýttu tækina ef bílinn býður upp á hana og stilltu á „krús-kontrolið“.
8. Hugsaðu fram á veginn
Að vera meðvitaður og yfirvegaður í akstri gerir það að verkum að þú keyrir á jafnari hraða og bremsar mýkra. Bílinn þinn mun þakka þér.
9. Veldu rétt leið
Að hanga í umferðateppu er ekki uppáhaldstími neins. Bíllinn þinn þolir það ekki heldur. Vert er því að plana vel ferðina og reyna að forðast óþarfa leiðindi.
10. Ekki hanga í hlutlausum
Dreptu á bílnum ef bílinn er kyrrstæður. Dropinn er dýrmætur.