- Auglýsing -
Af þeim Íslendingum sem greinst hafa með Covid-19 eru nú tólf látnir. Þetta kemur fram í nýjustu tölum á upplýsingasíðunni Covid.is.
Af þeim fjölda hafa tveir látist í þessari þriðju bylgju faraldursins. Fyrr í mánuðnum lést sjúklingur á Landspítala vegna COVID.
Viðkomandi var þá sá ellefti á Íslandi sem lést af völdum COVID. Tíu létust í fyrstu bylgjunni í vor. Í dag liggja 58 manns á spítala með sjúkdóminn, þar af er einn á gjörgæslu.