Listmálarinn Tolli sendir Jóni Gunnarssyni tóninn í færslu á Facebook.
Segir:
„Staðan er þessi að í ljósi síðustu atburða sýnist manni að hættulegasti maður innan refsivörslukerfis okkar er trúlega hann Jón dómsmálaráðherra.“
Tolli nefnir að með yfirlýsingu sinni um að herða beri róðurinn í baráttu við ofbeldi í samfélaginu:
„Með stríðsyfirlýsingu hans gegn skipulagðri brotastarfsemi er hann að kveikja elda sem geta haft alvarlegar afleiðingar; það er að gefa gengja menningu bæði aukið vægi og sterkari rödd og gera þennan vettvang sem svo kölluð „gengi “ eru fyrir unga karlmenn sem eru týndir í tilveruni aukið vægi sem vettvangur þar sem þeir geta fundist þeir vera menn með mönnum.“
Bætir við:
„Fram að þessu hefur þetta verið hættulega kjánalegt en nokkuð sem þú lagar ekki með stríði. Í bókinni The Art of war segir Sun Su að besti hershöfðinginn þarf aldrei að heyja orustu. Í guðanna bænum drögum andann djúpt áður en við bregðumst við ofbeldi með ofbeldi; í stóra samhenginu er hægt að vinna með þennan vanda án þess að fara í ofbeldisöfga hins obinbera.“