Leikarinn ástsæli Tom Hanks tilkynnti á dögunum að bæði hann og Rita eiginkona hans hefðu greinst með Covid-19 og væru í sóttkví í Ástralíu, þar sem leikarinn var við tökur þegar hann smitaðist. Hann gerði lítið úr sjúkdómnum og bað aðdáendur að hafa ekki áhyggjur, þeim liði vel. Í dag lýsir hann lífinu í sóttkvínni í pósti á Instagram og það er aðeins alvarlegri tónn í skrifunum en þegar hann greindi frá greiningunni.
Hann byrjar á því að þakka heilbrigðisstarfsfólki í Ástralíu fyrir að hugsa vel um þau hjónin og segir svo:
„Við erum með Covid-19 og erum í einangrun til að smita ekki aðra. Fyrir sumt fólk myndi smit leiða til mjög alvarlegs sjúkdóms. Við tökum þetta einn dag í einu. Við getum öll gert ákveðna hluti til að komast í gegnum þetta með því að fylgja ráðleggingum sérfræðinga og hugsa vel um okkur sjálf og aðra, er það ekki? Munið að þrátt fyrir allt sem nú gengur á þá er grætur maður ekki í hafnabolta.“
Síðasti frasinn er að sjálfsögðu kvót í persónuna sem Tom Hanks lék í kvikmyndinni A League of their Own.
Tökum á myndinni um ævisögu Elvis Presley, sem Tom var að vinna við þegar hann smitaðist, hefur verið frestað um óákveðinn tíma.