Minningarathöfn Tomasar Mančiauskas, tæplega þrítugs Litháia, fer fram í dag. Hann fannst látinn í söfnunargámi Rauða krossins í Kópavogi fyrir rúmri viku. Hann lætur eftir sig fjögurra ára gamla dóttur sem býr í Litháen.
Félag Litháa á Íslandi tilkynnti um andlátið innan hóps Litháa á Íslandi. Til stuðnings ungri dóttur Tomasar fer fram söfnun. Í dag verður haldin minningarathöfn í St. Jósefskirkju, kaþólsku kirkjunni í Hafnarfirði, klukkan 11:00. Þar mun Juan Carlos Escudero prestur halda helga messu til að kveðja Tomas, eða Tom eins og hann var kallaður.
Til stuðnings fjölskyldu Tomasar á erfiðum tímum geta þeir sem vilja hjálpa lagt inn á eftirfarandi reikning, reikningshafi er bróðir Tom sem býr einnig hér á landi:
0526-26-290991
Kennitala 290991-4639