Kraftlyftingakonan Laurel Hubbard frá Nýja-Sjálandi braut blað í sögu Ólympíuleikanna með þátttöku sinni – en hún er fyrsta transkonan sem tekur þátt í leikunum.
Hinni 43 ára gömla Hubbard – sem gekkst undir kynleiðréttingu árið 2021 – gekk ekki vel í sjálfri keppninni, en hún er í +87 kílógramma þyngdarflokki, og var fljótlega úr leik.
En það er ekki það sem fólk mun muna eftir.
Þátttaka Hubbard fer í sögubækurnar og sýnir enn og aftur hversu sterkur einstaklingurinn getur orðið – en Hubbard hefur glímt við allskyns fordóma í sínu lífi en samt haldið ótrauð áfram í átt að markmiðum sínum.
Síðan er ekki lokið fyrir það skotið að önnur transkona feti í fótspor Hubbard í Tókýó, en Bandaríkjamaðurinn Chelsea Wolfe er í startholunum ef eitthvað skyldi fara úrskeiðis.
Hún er varamaður í BMX hjólreiða liði Bandaríkjanna og með þátttöku tvöfaldar hún fjölda transkvenna á þessum sögulegu Ólympíuleikum í Tókýó í Japan. Wolfe hefur eins og Hubbard gengið í gegnum erfiða lífsreynslu og orðið fyrir einelti og fordómum.
Hubbard og Wolfe eru sannkallaðar hetjur sem sýna svart á hvítu hvers megnugur mannshugurinn er.