Uppnám varð á Völlunum í Hafnarfirði í gærkvöld þegar maður vopnaður hnífi gekk berserksgang og olli skemmdum í fjölbýlishúsi. Hnífamaðurinn var viti sínu fjær og ógnaði nærstöddum með vopni sínu. Lögreglan var með mikinn viðbúnað á vettvangi og naut aðstoðar sérsveitar við að ná til mannsins sem hafði lokað sig af inni í íbúð. Maðurinn var yfirbugaður og færður undir læknishendur. Fjöldi manns fylgdist með aðgerðunum.
Lögregla var kölluð til vegna heimilisofbeldis í austurborginni. Ofbeldismaðurinn var handtekinn og læstur inni í fangaklefa. Í sama hverfi varð fólki ekki svefnsamt vegna hávaða frá samkvæmi. Lögreglan lét lækka í græjunum.
Maður á reiðhjóli fékk tiltal fyrir að hjóla eftir umferðareyju við stofnbraut. Honum var ráðlagt varðandi öruggari hjólaleiðir.
Ungur maður með hníf hafði í hótunum við og ógnaði hópi ungs fólks í hverfi 113. Ofbeldismaðurinn ungi fannst ekki þrátt fyrir leit lögreglumanna.
Talsvert var um umferðaróhöpp í gærkvöld og nótt. Í einu tilviki stakk ökumaður af eftir ákeyrslu. Að vanda voru drukknir og réttindalausir ökumenn staðnir að verki.
Þá var tilkynnt um innbrot í heimahús í austurborginni. Þá var brotist inn í fyrirtæki. Málin eru til rannsóknar.