- Auglýsing -
Tvö ný COVID-19 smit hafa greinst síðasta sólarhring. Eitt við landamæraskimun á Keflavíkurflugvelli og annað úr sýnum sem Íslensk erfðagreining rannsakaði.
Alls voru 1.416 sýni tekin í landamæraskimun í gær. Íslensk erfðagreining tók 408 sýni í gær. Sýkla- og veirufræðideild Landspítalans tók 56 sýni í gær, ekkert smit greindist í þeim sýnum.
Þeim sem eru í sóttkví fækkar en 415 eru í sóttkví á landinu, daginn áður voru 443 eru í sóttkví samkvæmt upplýsingum á covid.is.