Tveir dóu af völdum Covid-19 á síðasta sólarhring. Þar með hafa 20 manns látið lífið af völdum veirunnar.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir staðfestir við visir.is að tveir hafi látist. Þar með hafa jafnmargir fallið í valinn og í fyrstu bylgjunni í vetur.
Á covid.is kemur fram að 13 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Alls hafa nú 5.078 manns greinst frá því faraldurinn hófst í febrúar á þessu ári.
80 manns eru á sjúkrahúsi, þar af fjórir á gjörgæslu. Vonir standa til að veiran sé að gefa eftir í þessari lotu og jafnvægi verði komið á fyrir jól. Ekkert er þó víst í þeim efnum og verður ströngum sóttvarnaaðgerðum haldið áfram.