- Auglýsing -
Ekkert nýtt COVID-19 smit greindist á síðasta sólarhring. Staðfest smit sem hafa komið upp hér á landi eru því ennþá 1.084 talsins.
Á vef covid.is kemur fram að aðeins séu tvö virk smit hér á landi. Enginn er á sjúkrahúsi með COVID-19. 766 einstaklingar eru í sóttkví.
Sýkla- og veirufræðideild Landspítalans rannsakaði 35 sýni í gær og Íslansk erfðagreining rannsakaði 196 sýni.