Kvikmyndahúsið Bíó Paradís í miðbæ Reykjavíkur sýnir frá öllum leikjunum frá heimsmeistaramótinu í knattspyrnu í Rússlandi í sumar undir yfirskriftinni HÚ! í Paradís!
Athygli vekur að sérstakur HÚ-varningur Hugleiks Dagssonar verður til sölu í bíóinu meðan á mótinu stendur en það er vægt til orða tekið að segja að vörurnar séu umdeildar. Það vakti mikinn usla fyrr á þessu ári þegar Hugleiki var bannað að selja varninginn þar sem HÚ væri skráð vörumerki hjá Einkaleyfisstofu. Var það íþróttafræðingurinn Gunnar Þór Andrésson sem sótti um einkaleyfið á slagorðinu á fatnaði og drykkjarvörum sumarið 2016, þegar Evrópumótið í knattspyrnu stóð sem hæst. Það mætti því halda að HÚ-vörurnar verði geysivinsælar í sumar.
Ókeypis verður inn á leikina í Bíó Paradís og verða þeir sýndir í bíósal, auk þess að vera varpað upp á tjald í anddyri kvikmyndahússins. Fyrsti leikur Íslands á mótinu er á móti Argentínu þann 16. júní klukkan 12.00.
Mynd / Hugleikur Dagsson