Þessa dagana er svo kallaðir Taxfree dagar í Hagkaup. Þá ættu neytendur að geta verslað vörur sem boðnar eru á téðum afslætti, á hagstæðara verði. Neytandi sem ætlaði að næla sér í sinn uppáhalds farða skannaði verðið á farðanum í Hagkaup, til þess að sjá afsláttarverðið. Sökum anna í búðinni ákvað hún að rölta aðeins um verslunarmiðstöðina og ætlaði að koma svo aftur í Hagkaup og kaupa farðann þegar um hægðist.
Hún fór í H&M og þar fann hún sama farða á 32 prósent lægra verði en á Taxfree í Hagkaup. Fullt verð í H&M er 2.995 krónur en fullt verð í Hagkaup er 4.899 krónur. Munurinn á verðinu er því í raun 64 prósent.
Þar að auki mætti spyrja sig að því af hverju farði frá ódýra merkinu Max Factor sé seldur á 4.899 krónur í Hagkaup.