Hópur fjárfesta á Eyjafjarðarsvæðinu skoðar nú hvernig hægt sé að koma á reglubundnu áætlunarflugi milli Akureyrar og tveggja til þriggja áfangastaða í Evrópu.
„Við erum sannfærð um að grundvöllur sé fyrir ætlunarflugi milli Evrópu og Íslands um Akureyrarflugvöll,“ segir Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, sem leiðir verkefnið fyrir hönd fjárfesta, í samtali við Fréttablaðið í dag.
Þar kemur fram að verkefnið beri vinnuheitið Niceair og að undirbúningsvinnan sé langt á veg komin. Mbl greinir jafnframt frá því að verkefnið njóti stuðnings ýmissa fyrirtækja og hagsmunaaðila, en helstu bakhjarlar þess eru Samherji, Höldur og Norlandair.
Til marks um að grundvöllur sé fyrir flugi milli Evrópu og Íslands bendir Þorvaldur meðal annars á að á meðan samdráttur sé í komu ferðamanna til Keflavíkur sé staðan allt annar fyrir norðan. „Hér hefur verið mikil aukning flugfarþega undanfarin ár. Í fyrra var aukningin tæplega 40 prósent og rúmlega 70 prósent árið áður,“ segir hann í samtali við Fréttablaðið. Þá muni flugið nýtast vel Norðlendingum og Austfirðingum sem séu orðnir þreyttir á því að keyra langar vegalengdir til og frá Keflavíkur, þurfa að borga þar fyrir gistingu og taka sér aukafrí.
Þorvaldur segir að fjársvelti Akureyrarflugvölls sé eina helsta hindrunin fyrir því að áætlanir félagsins nái fram að ganga. Flugvöllurinn sé sprunginn og fjármagn þurfi í uppbyggingu hans, meðal annars út frá öryggissjónarmiðum.
Niðurstaða fýsileikakönnunar er að vænta í lok apríl.