Lögreglunni barst tilkynning um líkamsárás í Grafarvogi í gær. Árásin átti sér stað síðdegis en þar hafði hópur fimmtán ára drengja ráðist á jafnaldra sinn. Drengurinn hlaut áverka í andliti og víðar um líkama. Drengurinn var ekki fluttur á sjúrahús en kvaðst hann ætla að leita sér læknisaðstoðar sjálfur. Lögregla tilkynnti málið til barnaverndar og rannsakar nú málið með aðkomu foreldra.
Eldur kom upp í bílskúr í hverfi 108 um klukkan fimm í nótt. Slökkviliðið var kallað út vegna eldsins og sprenginga sem urðu í brunanum. Slökkviliðinu tókst að slökkva eldinn innan við klukkutíma frá útkalli. Lögregla rannsakar nú vettvang en enginn slasaðist.
Þá voru nokkrir stöðvaðir vegna hraðaksturs í nótt.