Ungur maður fannst með alvarlega áverka í Manchester snemma í morgun og var í kjölfarið fluttur með hraði á sjúkrahús. Maðurinn var úrskurðaður látinn skömmu síðar en grunur liggur á að skotárás hafi átt sér stað. Maðurinn er talinn vera á aldrinum 18 til 25 ára en óskar lögregla nú eftir vitnum af árásinni sem átti sér stað við Claremont Road í Moss Side.
„Í fyrsta lagi er hugur minn hjá fjölskyldu og vinum fórnarlambsins á þessum afar erfiðu tímum eftir hræðilegan atburð,‘‘ sagði Jude Holmes, rannsóknarlögreglustjóri, í viðtali við Breska fjölmiðla nú í morgun. Sagði hann rannsókn málsins vera í fullum gangi og hvatti almenning til þess að forðast vettvang.