- Auglýsing -
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra fékk sér hund á dögunum. Hann deildi mynd af krúttinu á Facebook á föstudaginn.
„Hér er kynntur til leiks: Máni,“ skrifar Guðlaugur á Facebook um nýja fjölskyldumeðliminn sem er Golden Retriver. Hamingjuóskum rignir yfir hann á Facebook.
Hér er kynntur til leiks:Máni ❤️
Posted by Guðlaugur Þór Þórðarson on Föstudagur, 28. júní 2019
Guðlaugur og fjölskylda áttu hundinn Vask áður. Í maí endurbirti Guðlaugur myndband af Vaski á Facebook og sagði fjölskylduna sakna hundsins sárt.