- Auglýsing -
„Það má vera,“ sagði Skúli þegar hann var spurður út í mögulegar uppsagnir.
Skúli Mogensen, forstjóri og stofnandi Wow air, boðaði starfsfólk sitt á fund klukkan 10:00 í dag vegna frétta um að ekki verður af kaupum Icelandair Group á WOW air. Á fundinum kom fram að hann geti ekki útilokað að til uppsagna komi. Þetta kemur fram í frétt RÚV.
Þar kemur fram að Skúli hafi svarað: „Það má vera,“ þegar hann var spurður út í hvort til uppsagna gæti komið.
Þess má geta að Stefán Sigurðsson, fjármálastjóri fyrirtækisins, fullvissaði starfsfólk WOW air um að þau fái laun greidd um mánaðarmótin í tölvupósti sem hann sendi í gær.
Sjá nánar: Icelandair kaupir ekki WOW air
Mynd / WOW air