Valdís Anna Garðarsdóttir hjúkrunarfræðingur hefur verið ráðin deildarstjóri Hjartagáttar á Landspítala frá 1. júlí til næstu fimm ára.
Valdís Anna lauk BSc námi í hjúkrunarfræði frá Aarhus Sygeplejeskolen 2003. Hún hefur starfað á Landspítalanum frá 2004 við ýmsar deildir meðal annars sem hjúkrunarfræðingur á sérhæfðri endurhæfingargeðdeild, bráðamóttöku við Hringbraut og Hjartagátt og sem verkefnastjóri á menntadeild frá 2013-2018 þar sem hún sá um skipulagningu og stýrði meðal annars námskeiðum í sérhæfðri endurlífgun.
Valdís Anna var settur deildarstjóri Hjartagáttar frá 1. júlí 2018 til 30. júní 2020.