- Auglýsing -
Ung kona á Vesturlandi vann 124 milljónir króna á áskriftamiða í EuroJackpot.
Ung kona á Vesturlandi fékk gleðilegt símtal á mánudaginn þegar starfsmaður frá Íslenskri getspá hringdi í hana og tilkynnti henni að hún hefði unnið 124 milljónir á lottómiða í EuroJackpot.
„Ég er nú bara alveg steinhissa,“ er haft eftir konunni á vef Íslenskar Getspár. Þar segir að konan og eiginmaður hennar hafii verið með lottómiðann í áskrift. Þar kemur einnig fram að hjónin ætli að þiggja fjármálaráðgjöf sem vinningshöfum sem vinna milljónavinninga stendur til boða.