Lögregla handtók eftirlýstan mann í hvefi 105 í gærkvöldi. Maðurinn var vopnaður barefli þegar hann var handtekinn en auk þess var hann með fíkniefni meðferðis. Var hann vistaður í fangaklefa. Síðar um kvöldið barst lögreglu tilkynning um mann á torfæruhjóli í miðbænum. Gangandi vegfarendur áttu fótum sínum fjör að launa að verða ekki fyrir tækinu. Að loku missti maðurinn stjórn á hjólinu og féll í götuna. Á hann von á kæru fyrir hin ýmsu brot.
Tveir menn voru handteknir vegna líkamsárásar í nótt. Annar þeirra var handtekinn í Árbæ en hinn í Grafarvogi. Báðir bíða eftir skýrslutöku en annar þeirra var í annarlegu ástandi. Þá var lögregla kölluð út vegna innbrots í skólabyggingu í hverfi 104. Ekki er vitað hverjir voru að verki en skemmdarverk voru unnin innandyra. Málið er í rannsókn. Í hverfi 105 kom lögregla manni til bjargar eftir að hann hafði farið í sjóinn. Maðurinn var fluttur með sjúkrabíl á bráðamóttöku. Þá segir í dagbók lögreglu að nóttin hafi verið annasöm en auk þess sinnti lögregla reglubundu umferðareftirliti.