- Auglýsing -
„Ég var mjög hissa á útkomunni“ segir Bríet inn á Facebook grúppunni Vertu á verði. Hún vakti athygli á verðmun eftir að hafa keypt sér tvær stærðir af ostapoppi í Krónunni. Tvær stærðir voru í boði, annars vegar 100 gramma poki og 135 gramma poki. Sá minni kostaði 190 krónur og sá stærri 289 krónur. Sem sagt 240 króna verðmunur á kílóinu.
Það er ekki alltaf ódýrara að kaupa meira magn en minna. Svo það borgar sig að vera alltaf á verði.