Talsvert hefur rignt á Suðausturlandi og Austfjörðum í nótt. Það rignir enn og varar Veðurstofan við vatnavöxtum og aukinni hættu á skriðuföllum í bröttum hlíðum á þeim svæðum þar sem úrkoman hefur verið mest. Einnig eru líkur á vatnavöxtum á sunnanverðu hálendinu.Ferðafólk er beðið að sýna sérstaka aðgát.
Á landinu er búist við vestlægri eða breytilegri átt, 3-10 m/s en suðvestan 10-15 m/s með suðaustur- og austurströnd landsins. Von er á rigningu eða skúrum víðast hvar, hiti verður á bilinu 8 til 13 stig en von er á allt að 18 stiga hita á Austurlandi.