„Veðrið er orðið víða mjög slæmt,“ sagði Birgir Örn Höskuldsson, veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, í spjalli við mbl.is.
Birgir sagði að helst megi búast við hvassviðri í Vesturbænum og í kring. Hann segir það ekki koma neitt á óvart að veðrið á höfuðborgarsvæðinu hafi hingað til verið til friðs, en ansi víða í kring er orðið mjög hvasst.
Næstum öllum leiðum frá höfuðborgarsvæðinu hefur nú verið lokað; má þar nefna Reykjanesbraut; óvíst er hvenær opnað verður fyrir umferð þar.
Sagði Birgir að það megi búast við leiðinda veðri í dag sem og á morgun; gular viðvaranir eru í gildi á flest öllu landinu, meira og minna fram á annað kvöld:
„Snjórinn sem kom um helgina er að valda skafrenningi víða. Versta veðrið verður kannski í kvöld og nótt.“