Lægðin sem hefur verið við völd undanfarið er komin langt norður fyrir land og er henni þökkuð vel unnin störf. Veðrið verður því mun þægilegra en verið hefur; víða verður hæg breytileg átt sem og léttskýjað; stöku él á Suðaustur- og Austurlandi. Þá mun blása all nokkuð austantil á klakanum fram eftir morgni.
Víða verður fremur vægt frost í dag: Í kvöld mun svo herða á frostinu í innsveitum norðan- og austanlands.
Á morgun nálgast lægð úr suðvestri; gengur í sunnan 8-15 m/s með rigningu og/eða slyddu; úrkomulítið norðaustanlands fram eftir deginum; hlýnar í veðri og hiti á bilinu 2 til 9 stig eftir hádegið.
Undir kvöldið snýst svo í suðvestanátt; bætir heldur í vind; lægir þá norðvestantil og þar mun kólna með auknum líkum á snjókomu.