Nú er sá tími runninn upp að margir landsmenn hafa strengt þess heit að huga betur að heilsunni og ætla að taka mataræðið föstum tökum. Þeytingar eru bráðsniðug og einföld leið til að auka neyslu ávaxta og grænmetis og eru tilvalin sem morgunmatur eða til að grípa í yfir daginn.
Auðvelt er að útbúa vegan-væna þeytinga og um að gera að leyfa hugmyndafluginu að ráða för. Við tókum saman nokkrar hugmyndir til að koma þér af stað.
Suðrænn og seiðandi
1 bolli kókosmjólk
½ bolli af frosnum ananasbitum
½ bolli af frosnum mangóbitum
1 banani
safi úr ½ sítrónu
engifer eftir smekk, smátt skorið
Græn bomba
1 banani
1 bolli frosið mangó eða ananas
handfylli af spínati
1/4 gúrka
safi úr ½ límónu
½ tsk. túrmerik
örlítið af svörtum pipar
vatn eftir smekk/þykkt
Kanill og banani – skotheld blanda
Kanil- og bananaþeytingur
¾ bolli af mjólk að eigin vali
1 banani
1/2 bolli af frosnum ananasbitum
2 msk. af möndlusmöri
kanill eftir smekk
engifer eftir smekk