Verðkönnun Mannlífs leiddi í ljós að Krónan hefur hækkað verð á sjö vörutegundum, lækkað verðið á 14 og verð á sex vörutegundum stóð í stað. Þessar breytingar áttu sér stað á tæpum þremur mánuðum.
Mannlíf skoðaði að þessu sinni verð á 27 vörutegundum sem voru teknar fyrir í verðkönnun þann 13.apríl síðastliðinn og var það borið saman við verð á sömu vörum 11. júlí. Það eru því tæpir þrír mánuður á milli kannana. Verð voru fengin í Krónunni í Mosfellsbæ í báðum tilfellum.
Niðurstöður
Af þeim 27 vörum sem skoðaðar voru höfðu sex þeirra staðið í stað, sjö höfðu hækkað í verði en fjórtán vörutegundir lækkuðu í verði. Ánægjulegt er að sjá lækkun á verði 14 vörutegunda en að sama skapi er leitt að sjá að sjö vörutegundir hækkuðu og þar af tvær verulega.
Lækkun:
0 til 5 prósent lækknun: 10 vörutegundir
5 til 10 prósent: 2 vörutegundir
22,3 prósent: 1 vara
40,8 prósent: 1 vara
Hækkun
0 til 5 prósent: 3 vörutegundir
5 til 10 prósent: 2 vörutegundir
13,3 prósent: 1 vara
17,3 prósent: 1 vara
Hér að neðan má sjá töflu með öllum upplýsingum.