- Auglýsing -
Mannlíf gerði verðkönnun og tók saman nokkra vöruflokka í Bónus og Krónunni og bar saman verð. Það sem kom mest á óvart var að nánast engin verðmunur er á sambærilegum vörum. Aðeins króna skilur að. Sáralítil samkeppni virðist vera í þeim tveimur verslunum sem teljast til lágvöruverslana.
Niðurstöðurnar er að finna í nýjasta tölublaði Mannlífs sem kemur út í dag. Tímaritið er að finna hér og er einnig dreift ókeypis í verslunum Bónuss, Hagkaupa og á N1, á höfuðborgarsvæðinu.