Miðstöð íslenskra bókmennta hefur nú hleypt af stokkunum verkefni sem ber heitið höfundaheimsóknir í framhaldsskóla, þar sem rithöfundar heimsækja skólana, hitta nemendur í kennslustund og ræða við þá um bækur sínar.
Markmið verkefnisins er að hvetja nemendur til lestrar og auka skilning þeirra og áhuga á bókmenntum og starfi rithöfunda.Höfundaheimsóknirnar hefjast nú á vorönn, í fyrstu umferð taka fjórir rithöfundar þátt og mæta í tíma til nemenda í íslenskum bókmenntum þar sem þeir fjalla um og ræða bækur sínar. Nemendurnir hafa þegar lokið við að lesa að minnsta kosti eina valda bók þess höfundar sem kemur í heimsókn og fá tækifæri til að bera upp spurningar og vangaveltur sínar við höfundinn eftir lesturinn.
Höfundarnir sem skólarnir hafa óskað eftir nú í fyrstu umferð eru: Auður Ava Ólafsdóttir, Guðrún Eva Mínervudóttir, Kristín Helga Gunnarsdóttir, og Sigríður Hagalín.
Eftirtaldir skólar taka á móti höfundunum í heimsókn á þessari önn: Menntaskólinn við Hamrahlíð, Menntaskólinn við Sund, Tækniskólinn og Kvennaskólinn í Reykjavík.
Markmiðið er að bjóða nýjum skólum til leiks á haustönn og vonandi enn fleiri á komandi misserum. Verkefnið er unnið í góðu samstarfi Miðstöðvar íslenskra bókmennta við Rithöfundasamband Íslands, Skólameistarafélag Íslands og með styrk með styrk frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu.